Um þrautasafnið
Litlir leikir, vandlega gerðir.
BergPuzzles er safn þrautaleikja. Flestir á ensku en við setjum einnig út sér íslenska leiki, þá aðallega orðaleiki.
Mér finnst almennt gaman að búa til hluti, og hef gert þó nokkur hliðarverkefni í gegnum árin. Það er lúmskt skemmtilegt að búa til þrautaleiki þar sem það sameinar margt skemmtilegt eins og gagnavinnslu, notendaupplifun o.fl.
Stundum þarf að kafa nokkuð djúpt, t.d. til að finna góða leið til að búa til orðalista og þrautir fyrir slenska orðaleiki eins og Orðakjarna og Orðakubb.
Hvernig verkefnið byrjaði
Hugmyndin af fyrsta leiknum kom til eftir að ég spilaði pappírsútgáfu af „Bulls and Cows“ við dóttur mína í sumarbústað. Stuttu seinna gerði ég frumútgáfu sem seinna varð Mysterymoo.
Rúmu ári síðar sýndi hún mér roblox leik sem heitir „Guess the Word“, sem einhverjir gætu þekkt sem contexto. Ég fór strax að hugsa hvort það væri ekki einfalt að búa til íslenska útgáfu. Svarið er já það er einfalt að búa lélega útgáfu. Það erfiða er að velja góð leyniorð og raða hinum orðunum þannig að leikurinn virki sanngjarn.
Gott að vita
- Það er frítt að spila leikina
- Þú þarft ekki að stofna aðgang
- Stillingar t.d. dökkt/ljóst þema eru vistaðar í vafranum
- Framvinda leikja getur verið vistuð í vafra. Ef gögnum í vafra er eytt þá eyðist líka framvinda leikja
- Ef margir vilja getað vista framvindu og stillingar fyrir notanda (líka milli tækja), þá munum við leyfa innskráningar. Endilega hafðu samband ef það skiptir þig máli.
Fylgstu með
Ég mun birta lengri færslur, gagnagreiningar o.fl. á einarberg.com. Þú getur líka farið aftur í þrautasafnið og glímt við eitthvað.
Heimildir, þakkir og leyfi
Þrautirnar í leikjunum sem nú eru opnir eru frumsamdar eða búnar til sérstaklega fyrir BergPuzzles. Þær byggja ekki á ytra safni tilbúinna þrauta.
Gögn fyrir Orðakubb byggja á gögnum úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN) og tíðnigögnum úr FrequencyWords eftir Hermit Dave. Efni FrequencyWords er gefið út með CC BY-SA 4.0 leyfi. BergPuzzles staðlar, síar og raðar gögnunum til að útbúa orðasöfn og þrautir fyrir leikinn. Afleiddu gögnin falla undir sama leyfi. Upprunalegu gagnasöfnin eru ekki endurbirt af BergPuzzles. Enginn gagnaveitandi styður eða mælir sérstaklega með BergPuzzles.
Skyldubundin BÍN-heimild: The Database of Icelandic Morphology. The Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies. Author and editor Kristín Bjarnadóttir. bin.arnastofnun.is. Sjá nánari heimildir og lýsingu á breytingum.
Ensk gögn fyrir Orðastiga byggja á 12dicts 6.0.2, sem Alan Beale tók saman og gaf í almenningseigu með ósk um að heimildarinnar sé getið. Sjá nánari upplýsingar um heimildina.
Viðmótið notar Geist-leturgerðina með SIL Open Font License 1.1 ásamt opnum viðmótssöfnum með viðeigandi hugbúnaðarleyfum.